Upplýsingar

Allt sem þig langaði að vita en þorðir ekki að spyrja um samtalið.

Um Samtal

Samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.

Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins. Frá upphafi hefur áherslan verið skýr: Samtalið eigum við saman.

Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, hlustað hvert á annað og rætt spurninguna:

Hvernig samfélag viljum við skapa saman?

Meðal þeirra sem styðja Samtal og leggja verkefninu lið eru fjármálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Bandalag íslenskra skáta, Félag framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Ungmennafélag Íslands, Heimili og skóli og Embætti forseta Íslands.

Um vefinn

Viti tekur á móti gestum á forsíðu vefsíðu verkefnisins. Ljós vitans vísar til þess að hvert samtal getur haft áhrif langt út fyrir samtalsborðið, rétt eins og samtalið á leiðtogafundinum í Reykjavík fyrir 40 árum hafði áhrif langt út fyrir veggi Höfða.

Vefsíðan heldur utan um skráningu þátttakenda í Samtalið og gerir skipuleggjendum kleift að raða þátttakendum á samtalsstaði og að borðum, auk þess að tryggja að lóðsar séu við hvert borð.

Við skráningu velja þátttakendur meðal annars hvaða málefni þeir vilja ræða út frá meginspurningunni:

Hvernig samfélag viljum við skapa saman?

Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að deila uppáhaldsstað sínum á Íslandi.

Á vefnum verður hægt að sjá samtalshringina og hversu margir taka þátt á hverjum stað fyrir sig. Þannig verður sýnilegt hvernig samtöl um allt land tengjast saman í eitt stórt samtal.

Gervigreind er nýtt við gerð vefsíðunnar og til úrvinnslu niðurstaðna. Notkun hennar byggir á hugmyndafræði og gildum verkefnisins.

Orðskýringar

Hvað er lóðs?

Lóðsar leiða samtalið við hvert borð á samtalsdeginum. Tveir lóðsar verða við hvert borð.

Lóðsar eru 16 til 30 ára og fá sérstaka þjálfun og stuðning í því hvernig leiða má gott og uppbyggilegt samtal. Bandalag íslenskra skáta og Embætti landlæknis leiða þá þjálfun.

Lóðsarnir taka sjálfir fullan þátt í samtalinu en hafa jafnframt það hlutverk að gæta að tímastjórnun og tryggja að allir við borðið fái tækifæri til að láta rödd sína heyrast.

Hvað er peppari?

Pepparar eru ungt fólk á aldrinum 16 til 30 ára sem hefur tekið að sér að hvetja fólk til þátttöku í Samtalinu.

Peppmeistari gegnir hlutverki kynningarstjóra á hverjum samtalsstað. Peppmeistari og pepparar vinna saman að því að kynna Samtalið í sínu nærumhverfi og á samfélagsmiðlum og taka jafnframt þátt í Samtalinu sjálfu.

Hvað er staðarhaldari?

Staðarhaldarar halda utan um skipulag á hverjum samtalsstað. Þau tryggja meðal annars að húsnæði sé opið og tilbúið, stofna borðin í kerfinu og úthluta lóðsum á þau, passa að borðum sé stillt upp, lóðsar viti hvert þeir eiga að mæta og að önnur hagnýt atriði séu í lagi.

Staðarhaldari styður jafnframt við lóðsa og peppara og kallar eftir aðstoð ef þörf er á.

Hvað er samtalsstaður?

Samtalsstaður er staðurinn þar sem eitt eða fleiri samtalsborð koma saman.

Við hvert borð verða tveir lóðsar og 5 til 7 þátttakendur á öllum aldri. Þátttakendum verður raðað við borð af handahófi með það að markmiði að skapa fjölbreytt samtal.

Fyrir Samtalið fá allir þátttakendur upplýsingar um hvert þeir eiga að mæta og við hvaða borð þeir eiga að setjast.

Þess vegna er mikilvægt að allir sem vilja taka þátt skrái sig á vefsíðunni og tilgreini hvar þeir vilja helst mæta og hvaða málefni þeir hafa mestan áhuga á að ræða.

Umræðuefni

Meginspurning dagsins verður:

Hvernig samfélag viljum við skapa saman?

Samtalið byggir síðan á þeim málefnum sem þátttakendur sjálfir hafa sagt að þeir vilji ræða.

Við hvert borð verður hægt að velja úr nokkrum þeirra málefna sem oftast hafa verið nefnd við skráningu. Það gæti til dæmis verið náttúra, gervigreind, menntun eða önnur mál sem þátttakendur telja mikilvæg.

Öll umræðuefni verða rædd út frá meginspurningu dagsins. Endanleg umræðuefni munu því ráðast af þátttakendum og liggja fyrir á samtalsdeginum sjálfum.

Handrit dagsins

Tveimur dögum fyrir Samtalið, 8. október, fá þátttakendur upplýsingar á tölvupósti um hvert þeir eiga að mæta. Þar kemur fram bæði staðsetning og við hvaða borð viðkomandi á að setjast.

Samtalið verður fjölbreytt og byggir á þeim málefnum sem þátttakendur hafa talið mikilvægt að ræða út frá meginspurningu dagsins.

Að morgni samtalsdags fá lóðsar þjálfun í að leiða samtalið, frá kl. 10:30 til 13:00.

Húsið opnar kl. 13:30 fyrir þátttakendur. Samtalið sjálft hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 17:00.

Í lok samtalsins tekur hvert borð saman stutta setningu eða niðurstöðu fyrir hvert umræðuefni. Setningin á að lýsa því sem kom fram í samtalinu og þarf ekki að fela í sér að allir við borðið hafi verið sammála.

Dæmi:

Hvert borð skilar 3 til 5 slíkum setningum sem lóðsar skrá í kerfi Samtalsins.

Engar persónugreinanlegar upplýsingar verða hafðar með í þessum niðurstöðum. Gervigreind verður nýtt við að draga saman niðurstöður samtalanna og varpa ljósi á þau málefni, sjónarmið og áherslur sem komu fram.

Niðurstöðurnar verða kynntar á viðburði í Hörpu 11. október og jafnframt birtar á talasaman.is.

Lóðsar munu einnig eiga kost á að lesa inn stutt hljóðskilaboð með samantekt frá sínu borði. Þannig verða varðveitt hljóðbrot sem endurspegla samtöl dagsins.

Algengar spurningar

Hvað er Samtal?

Samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.

Þann 10. október, frá kl. 14:00 til 17:00, mun ungt fólk leiða samtal þar sem ólíkar kynslóðir og fólk með fjölbreyttan bakgrunn kemur saman.

Samtalið fer fram víða um land, meðal annars í framhaldsskólum.

Verða mörg samtöl?

Samtöl fara fram víða um land og ræðst fjöldi þeirra af þátttöku. Á sumum stöðum verða ef til vill þrjú samtalsborð en á öðrum þrjátíu. Samtölin fara fram samtímis 10. október frá kl. 14:00 til 17:00.

Samtalsdagurinn er þó hugsaður sem upphaf, ekki endapunktur. Markmiðið er líka að þróa aðferð sem gerir okkur kleift að koma saman til samtals þegar við teljum þörf á því sem samfélag.

Af hverju þurfum við að tala saman?

Hæfni til að eiga góð og uppbyggileg samskipti, óháð skoðunum og bakgrunni, er mikilvægur samfélagslegur innviður.

Í hröðu samfélagi og á tímum mikilla tæknibreytinga er mikilvægt að skapa rými þar sem við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað.

Gott samtal krefst æfingar, rétt eins og svo margt annað. Því oftar sem við æfum okkur í að hlusta og ræða saman af virðingu, því betri verðum við í því.

Hvert er markmið Samtals?

Markmið Samtals er fyrst og fremst að þjálfa samtalsvöðva þjóðarinnar.

Samtalið sjálft er því markmið í sjálfu sér. Engu að síður verða þau málefni sem þátttakendur velja að ræða og þær niðurstöður sem verða til við borðin tekin saman og kynnt.

Þannig fáum við innsýn í það sem fólki í íslensku samfélagi liggur á hjarta og hugmyndir þess um hvernig við getum saman skapað það samfélag sem við viljum búa í.

Hvernig tengist Samtal 40 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða?

Leiðtogafundurinn í Reykjavík árið 1986 er áminning um mikilvægi samtals, jafnvel þegar niðurstaðan liggur ekki fyrir strax.

Fundur leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í Höfða varð mikilvægur þáttur í þróun samskipta stórveldanna og viðræðum um afvopnun. Fjörutíu árum síðar viljum við aftur draga fram kraftinn sem getur falist í því að setjast niður, hlusta og tala saman.

Geta allir verið lóðsar?

Öll á aldrinum 16 til 30 ára geta skráð sig sem lóðsa. Þau fá leiðbeiningar og þjálfun áður en Samtalið fer fram. Þau sem vilja lóðsa samtöl merkja við það sérstaklega í skráningarforminu. Þegar lóðs hefur skráð sig á talasaman.is getur viðkomandi boðið einhverjum að gerast lóðs með sér á heimasvæðinu sínu. Þannig geta vinir valist saman til að leiða samtal á hverju borði. Lóðsar geta líka skráð sig stakir og raðast þá með einhverri ungri manneskju á sínum samtalsstað.

Hvernig tek ég þátt?

Þú skráir þig til þátttöku á talasaman.is. Við skráningu gefur þú upp þær upplýsingar sem þarf til að hægt sé að finna þér samtalsstað og borð.

Nánari upplýsingar um stað og borð verða síðan sendar í tölvupósti.

Hver geta tekið þátt?

Samtalið er opið öllum 16 ára og eldri, óháð bakgrunni, stöðu eða pólitískum skoðunum.

Hvað verður gert við niðurstöðurnar?

Niðurstöður samtala dagsins verða teknar saman og birtar á talasaman.is.

Þar verður hægt að sjá hvaða málefni voru rædd og hvaða áherslur komu fram. Niðurstöður verða ekki persónugreinanlegar.

Hvernig veit ég hvert ég á að mæta?

Tveimur dögum fyrir Samtalið færðu upplýsingapóst þar sem kemur fram hvert þú átt að mæta og við hvaða borð þú átt að setjast.

Verða samtöl á öðrum tungumálum?

Stefnt er að því að fólk geti tekið þátt á sem flestum tungumálum.

Við skráningu getur fólk tilgreint hvaða tungumál það kýs að nota í samtalinu, til dæmis íslensku, ensku, pólsku, spænsku eða íslenskt táknmál.

Skipuleggjendur munu eftir bestu getu raða saman þátttakendum eftir tungumálum og sjá til þess að nauðsynlegur stuðningur sé til staðar. Markmiðið er að sem flestar raddir þeirra sem mynda íslenskt samfélag fái að njóta sín.

Kostar eitthvað að taka þátt?

Nei, þátttaka í Samtalinu er ókeypis.

Þarf ég að undirbúa mig?

Nei. Þú þarft hvorki að hafa sérstaka þekkingu né undirbúa skoðanir þínar fyrirfram. Það eina sem þú þarft að koma með er vilji til að hlusta, taka þátt og deila þínum sjónarmiðum.

Þarf ég að vera allan tímann?

Til að rödd þín heyrist og til að ná sem bestu samtali er mikilvægt að fólk mæti stundvíslega og taki þátt allan tímann. Samtalið er byggt upp þannig að það verður hreyfing og fólk mun því ekki sitja fast við borð allan tímann. Það verða einhverjar veitingar í boði og að minnsta kosti drykkir til að svala samtalshálsum. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvað verður í boði, annað en kaffi, te og vatn.

Hvað ef ég þekki engan á samtalsstaðnum?

Það er ekkert mál. Þú þarft ekki að mæta með einhverjum sem þú þekkir. Hluti af hugmyndinni er einmitt að fólk sem annars hefði kannski ekki hist fái tækifæri til að setjast saman að borði.

Get ég mætt með vini eða fjölskyldumeðlim?

Fólk er hvatt til að fá aðra með sér og skrá sig. Þannig geta vinir og fjölskyldumeðlimir mætt saman á samtalsstað. Þátttakendum verður þó raðað á borð af handahófi þannig að það er ekki víst að fólk lendi saman á borði þótt það verði á sama samtalsstað.

Þarf ég að segja skoðun mína á öllu?

Nei. Enginn þarf að tjá sig um eitthvað sem hann vill ekki ræða. Lóðsar sjá til þess að allir hafi tækifæri til að tala en þátttakendur ráða sjálfir hverju þeir vilja deila.

Er samtalið pólitískt?

Samtal er ekki vettvangur stjórnmálaflokka eða einstakra stjórnmálaskoðana. Markmiðið er að skapa rými þar sem fólk með ólíkar skoðanir og bakgrunn getur rætt saman og hlustað hvert á annað.

Verður það sem ég segi tekið upp?

Nei, það verða ekki gerðar upptökur á samtölunum en lóðs mun eiga kost á því að taka upp hljóðskilaboð með niðurstöðum hóps í lok samtals.

Hvernig verður gervigreind notuð?

Gervigreind verður notuð til að aðstoða við að greina og draga saman niðurstöður samtalanna. Hún er ekki notuð til að meta einstaka þátttakendur eða skoðanir þeirra. Persónugreinanleg gögn verða ekki hluti af þeirri úrvinnslu. Sjá persónuverndarstefnu.

Hvað gerist eftir 10. október?

Niðurstöður samtals verða aðgengilegar á vefsíðunni talasaman.is og kynntar sérstaklega í Hörpu þann 11. október. Nákvæmar niðurstöður liggja því ekki fyrir fyrr en að samtali loknu en vonast er til að þær muni innihalda leiðarljós og atriði sem við getum tekið til okkar sem einstaklingar. Atriði sem stuðla að því samfélagi sem við viljum byggja saman.

Hvernig hef ég samband við skipuleggjendur?

Þú getur sent tölvupóst á samtal@talasaman.is.