Samantektir
Tölum saman um framtíðina
Fyrir fjörutíu árum settust leiðtogar tveggja stórvelda niður til samtals í Höfða, á tímum mikillar spennu og ótta í heiminum. Þeir leystu ekki allan ágreining sinn, en samtalið átti þátt í að breyta gangi sögunnar.
Nú, á tímum mikilla umbreytinga og hraðrar tækniþróunar, viljum við á ný skapa rými til að staldra við, hlusta og tala saman.
Í október bjóðum við til þjóðarsamtals: Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru, er boðið að taka þátt, til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila því sem skiptir okkur máli: vonum okkar, gildum og hugmyndum um framtíðina.
Kannski breytum við ekki heiminum á einum degi en orð eru til alls fyrst og vonin vex þegar við tökum virkan þátt.
Sköpum framtíðina saman.
Upplýsingar
Allt sem þig langaði að vita en þorðir ekki að spyrja um samtalið.
Hringir
Samtalið mun eiga sér stað í hringjum, stórum og litlum.
Staðir
Hver ætli sé uppáhaldsstaðurinn okkar?
Íslenskast
Hvað er það íslenskasta í heimi? Svörin, flokkuð.
Efnisflokkar
Hvað viljum við tala um? Orðin sem fólk valdi, flokkuð.