Opin gögn
Gögnin á bak við talasaman.is eru opin öllum til að skoða, greina og byggja á. Enginn lykill og engin skráning: hvert gagnasafn er ein slóð sem skilar JSON, eða CSV fyrir töflureikni.
Leyfi og tilvísun
Gögnin eru gefin út undir Creative Commons Attribution 4.0 (CC BY 4.0). Þú mátt nota þau, breyta og deila í hvaða tilgangi sem er, líka í ábataskyni, ef þú vísar til uppruna þeirra. Svona:
Gögn: Samtal, félag til almannaheilla (talasaman.is), CC BY 4.0
Notkunarskilmálar
- Reyndu ekki að bera kennsl á einstaklinga eða tengja gögnin við aðrar upplýsingar í þeim tilgangi.
- Settu niðurstöður þínar ekki fram sem afstöðu eða niðurstöðu Samtals.
- Gögnin eru afhent eins og þau eru, án ábyrgðar. Þau breytast eftir því sem fleiri taka þátt.
Gagnasöfnin
Hringjatréð með fjölda í hverjum hring, sömu tölur og á /hringir. Ísland er rótin. Hringir Þjálfa, Þjálfaþjálfa og Stýrihóps og borðin eru ekki með, eins og á kortinu.
GET /api/v1/circles
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| slug | Fast auðkenni hringsins, líka notað í parentSlug. |
| name | Heiti hringsins. |
| kind | Tegund: organizer er Ísland, area er póstnúmer eða flokkunarhringur, location er staðsetning, facilitator eru Lóðsar. |
| parentSlug | Hringurinn sem þessi hangir undir, null fyrir rótina. |
| memberCount | Fjöldi virkra meðlima. Flokkunarhringirnir (Póstnúmer, Staðsetningar) hafa enga eigin meðlimi. |
Uppáhaldsstaðir og ástæðurnar að baki, nákvæmlega eins og á /stadir: aðeins staðir með lýsingu, aldrei nafn höfundar, og hnitin námunduð.
GET /api/v1/places
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| id | Fast auðkenni færslunnar. Slóðin talasaman.is/stadir?stadur=<id> opnar staðinn. |
| place | Heitið sem viðkomandi gaf staðnum. |
| reason | Af hverju staðurinn er í uppáhaldi, með orðum viðkomandi. |
| lat | Breiddargráða, námunduð að tveimur aukastöfum (um 1 km). |
| lng | Lengdargráða, námunduð að tveimur aukastöfum (um 1 km). |
Svörin við „Hvað er það íslenskasta í heimi?", flokkuð í höndunum. Dagsett afrit, ekki lifandi gögn, eins og á /islenskast. Svar sem nefnir tvö hugtök birtist undir báðum.
GET /api/v1/islenskast
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| category | Auðkenni flokks. |
| categoryLabel | Heiti flokks. |
| concept | Auðkenni hugtaks innan flokksins. |
| conceptLabel | Heiti hugtaks. |
| answer | Svarið orðrétt. Eins svör (óháð há- og lágstöfum og bilum) eru sameinuð. |
| count | Hve mörg gáfu þetta svar. |
Orðin sem valin eru undir „Hvað viltu tala um?" og hve mörg völdu hvert, vinsælustu fyrst. Orð sem stjórnendur hafa falið eða bannað eru ekki með.
GET /api/v1/topics
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| word | Orðið. |
| count | Hve mörg hafa valið orðið. |
Það sem sagt var við hvert borð um hvert umræðuefni, skráð af lóðsunum, og frá 10. október líka af einstökum þátttakendum (sjá source). Með fylgja staðsetningin, póstnúmer hennar og borðið, og hljóðupptakan þar sem sá sem talaði samþykkti að deila henni. Nafn höfundar fylgir aldrei.
GET /api/v1/summaries
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| id | Fast auðkenni samantektarinnar. Upptakan, þar sem henni er deilt, er á /api/v1/summaries/<id>/audio. |
| topic | Efnisflokkurinn sem rætt var um, eins og lóðsinn valdi hann eða skrifaði. |
| topicChosen | true ef efnisflokkurinn var valinn af listanum, false ef lóðsinn skrifaði hann sjálf(ur) undir „Annað“. |
| summary | Samantektin, með orðum lóðsins, eða það sem einn þátttakandi tók með sér af borðinu. |
| source | Hver skrifaði: lods er samantekt borðsins, frá lóðsi (eða varaskráningu staðarhaldara), participant er samantekt eins þátttakanda, skráð eftir að Samantekt var opnuð öllum sem sátu við borð. |
| audio | Slóð á hljóðupptöku samantektarinnar, aðeins þar sem sá sem talaði samþykkti að deila henni. Annars null. |
| location | Staðsetningin sem borðið var á. |
| locationPostCode | Póstnúmer staðsetningarinnar, ekki nokkurs einstaklings. |
| table | Númer borðsins á staðsetningunni. |
Heildartölur í einni töflu.
GET /api/v1/stats
| Svæði | Lýsing |
|---|---|
| metric | Hvað er talið: participants (skráð), circlesWithMembers (hringir með fólki), locations (staðsetningar), places (staðir með lýsingu), topicWords (valin orð). |
| value | Talan. |
Dæmi
Hvert svar er { data, meta }: raðirnar í data, og í meta hvenær þær voru teknar saman, fjöldi, leyfið og tilvísunin.
Skipanalína
curl https://talasaman.is/api/v1/topicsJavaScript (vafri, Observable, Node)
const { data } = await fetch('https://talasaman.is/api/v1/topics').then((r) => r.json())
console.log(data.slice(0, 10))Python (pandas)
import pandas as pd
topics = pd.read_csv('https://talasaman.is/api/v1/topics?format=csv')R
topics <- read.csv('https://talasaman.is/api/v1/topics?format=csv', encoding = 'UTF-8')Persónuvernd
Ekkert í þessum gögnum er um einstakling: engin nöfn, netföng, símanúmer, póstnúmer, fæðingarár eða auðkenni fólks. Hnit staða eru námunduð að um einum kílómetra. Staðirnir og Íslenskast birta texta sem fólk skrifaði, eins og síðurnar sjálfar gera, og þátttakendur samþykktu að svör þeirra færu í opið gagnasafn. Nánar í persónuverndarstefnunni.
Fyrir forritara
- Lýsing á öllu viðmótinu, búin til úr kóðanum: /api/v1/openapi.json (OpenAPI 3.1).
- Opið fyrir allar vefslóðir (CORS), svo það má sækja gögnin beint úr vafra á hvaða vef sem er.
- Svör eru geymd í allt að fimm mínútur, svo ný gögn birtast innan þess tíma.
- Hámark 120 fyrirspurnir á mínútu frá hverri IP-tölu. Fyrir meira, hafðu samband.
- Útgáfa 1: svæði geta bæst við en þau sem fyrir eru breytast ekki. Breytingar sem brjóta eitthvað fara í /api/v2.
Það sem kemur næst
Svörin úr Samtalinu 10. október bætast við eftir daginn. Aldur fylgir svörunum í fimm ára bilum en póstnúmer ekki, svo enginn þekkist af aldri og staðsetningu saman.