Hér eru staðirnir sem við elskum og ástæðurnar sem liggja að baki.Skráðu þig til að merkja þinn uppáhaldsstað.
Erum með sumarbústað þar, stutt frá bænum og svo er Golfvöllurinn Dalbúi alveg við sumarbústaðarsvæðið
Smelltu á stað til að lesa söguna á bak við hann og haltu svo áfram með „Næsti“.
Góðar minningar um fjölskyldu ferðalög
Fallegustu fjöllin, steinarnir og sólin í dalnum
Þar er einstök náttúra, ekkert símasamband, ekkert rafmagn en mikilvægast af öllu þá er sundlaug.
Æskustöðvar, góðar minningar, undirstöðuatvinnuvegur fyrir aldamót, paradís fram að kvótakerfinu
einstakur og sannarlega fallegur staður.
Fjörðurinn er breiður og útsýnið fallegt til allra átta. Náttúruperlur leynast í frá ströndum til heiða enda náttúran fjölbreytt, með dali, ár, lón, nes, gljúfur, fjörur og fuglalíf. Þarna er hægt njóta allskonar útivistar, ganga um söguslóðir en líka að upplifa einstaka kyrrð og ró.
Því ég elska þjóðhátíð❤️
Fallegur
Ég á svo margar skemmtilegar minningar og þekki þennan stað svo ótrúlega vel. Úlfljótsvatn er staður sem eg verð aldrei þreyttur á að fara á.
náttúrufegurð
Þar er kyrrð og fegurð, dýr og fuglar og fallegasta útsýnið.
Notalegt, mikið af öðruvísi náttúru
Ég á marga uppáhalds staði en þessi staður veitir mér ákveðið öryggi þar sem ég get séð ljósin í Reykjavík og hlustað á fuglanna og sjóinn. Gott að sitja á bekknum þarna og hlusta eða að spjalla.
Ég er örugg.
Fallegasti staður í heimi. Heimaklettur drottnar yfir þér, Skansvirkið stendur hálfgrafið út úr hrauninu og fyrir neðan þig er stafkirkjan í allri sinni dýrð. Á sumar degi þar sem þú heyrir í kindunum jarma upp á Heimaklett gerist lífið ekki betra.
Ein ósnortnasta og mesta náttúrufegurð sem til er á landinu. Friðsælli stað er erfitt að finna.
Því það er svo friðsælt og fallegt þar á sumrin❤️
Þar er bara fallegast,besta veðrið og frábært fólk
Ótengd tilvera og kyrrð í náttúrunni.
Fallegur garður sérstaklega þegar það er einhvað um að vera eins og desember og jólin framundan