Samtal

Tölum saman um framtíðina

10. október 2026

Taka þátt

Skráðu þig og fáðu boð í samtalið. Umræðan verður leidd af ungu fólki sem býðst þjálfun fyrir samtalið.

Taka þátt
Eigum við að tala saman?
Laugardaginn 10. október hittumst við í skólum og öðrum samkomustöðum og tölum saman undir handleiðslu ungra lóðsa.
Hver geta tekið þátt?
Öll, óháð aldri. Fólk á aldrinum 16-30 ára getur skráð sig sem lóðs og fengið þjálfun í að leiða samtal á þínu borði/þínum hring.
Hvað er lóðs?
Ungur leiðbeinandi sem stýrir samtali og passar að öll fái að tjá sig.
Hvað er borð/hringur?
Hópurinn sem þú tilheyrir og tekur þátt í samtali við.
Hvernig tek ég þátt í Samtali?
  • Þú skráir þig hér á vefnum og svarar um leið fáeinum einföldum spurningum.
  • Þú færð boð í Samtal sem fram fer 10. október í nágrenni við þig.
  • Þú tekur þátt Samtali á þeim stað í þeim hring/borði sem tilgreindur er í boðinu.
  • Þú lýkur þátttöku með því að svara rafrænt nokkrum spurningum í viðbót.
Hvað ef ekkert samtal er í nágrenni við mig?
Þá hvetjum við þig til að skipuleggja þitt eigið samtal og hjálpum þér af stað.
Hvað verður um svörin mín?
Afrakstur Samtalsins verður gerður aðgengileg hér á vefnum og fellur undir opin gögn (sjá nánar Persónuverndarstefnu Samtals).