Stefnuyfirlýsing

Samtal er örugg höfn fyrir samtal þjóða.

Heimahöfn er tilfinning. Tilfinningin að eiga stað þar sem maður er séður, metinn og á heima. Samtal getur orðið ein af leiðunum sem við notum til að byggja slíka heimahöfn sem samfélag.
  1. Samtalið er allra

    Enginn á samtalið nema fólkið sem tekur þátt. Gögnin sem verða til eru sameign þátttakenda, opin og aðgengileg öllum.

  2. Öryggi og friður

    Heimahöfn er ætlað að efla frið og farsæld. Í Heimahöfn ríkir virðing. Hótunum, ofbeldi og hatri er vísað frá.

  3. Allar raddir heyrast

    Heimahöfn tekur ekki afstöðu. Hún tryggir að öll fái orðið, líka þau sem sjaldnar heyrist í.

  4. Enginn gróði

    Heimahöfn er ekki til sölu, verður ekki veðsett og skilar aldrei arði. Gögn þátttakenda eru aldrei söluvara.

  5. Tæknin þjónar fólki

    Við notum tækni til að hlusta betur, tengja fleiri saman og skila samtalinu til baka. Aldrei til að stýra fólki.

  6. Traust er grunnurinn

    Öryggi, gagnsæi og ábyrgð eru ekki aukaatriði heldur grunnurinn sem allt hvílir á.

  7. Það sem við hlúum að vex

    Við byggjum til langs tíma, fyrir kynslóðirnar sem taka við af okkur.