Persónuverndarstefna Samtals

talasaman.is

Útgáfa 1.1, drög. Síðast uppfært: 6. september 2026.

Í stuttu máli

Við biðjum um lítið og segjum skýrt hvað við gerum við það.

  • Við söfnum netfangi, fæðingarári og póstnúmeri. Lóðsar gefa líka upp skóla. Síðar gætum við beðið um símanúmer.
  • Við söfnum svörum þínum við spurningum Samtalsins, fyrir og eftir samtalið.
  • Svörin þín verða hluti af opnu gagnasafni sem allir mega nota. Þar fylgja svörunum aðeins póstnúmer, fæðingarár og hringurinn þinn (til dæmis skóli eða vinnustaður). Aldrei netfang, aldrei símanúmer, aldrei nafn.
  • Við biðjum um leyfi til að hafa samband við þig með tölvupósti og SMS um Samtalið. Stjórnendur hringsins þíns geta líka haft samband.
  • Við biðjum sérstaklega um leyfi til að skoða hvernig vefurinn er notaður svo við getum bætt hann.
  • Við seljum ekki upplýsingar um þig og notum þær ekki í auglýsingar.
  • Þú getur hætt við hvenær sem er og fengið netfanginu þínu eytt.

Það sem hér fer á eftir útskýrir þetta nánar. Ef eitthvað er óskýrt máttu skrifa okkur á [netfang].

1. Hver ber ábyrgð á upplýsingunum?

Ábyrgðaraðili er [Samtal, félag til almannaheilla / sjálfseignarstofnun, kennitala félags], [heimilisfang].

Netfang fyrir spurningar um persónuvernd: [personuvernd@talasaman.is]

Ef við þurfum að tilnefna persónuverndarfulltrúa verður nafn hans og netfang birt hér.

2. Hvaða upplýsingum söfnum við?

UpplýsingarHver gefur þærTil hvers
NetfangAllir sem skrá sigTil að skrá þig inn með innskráningarhlekk, minna þig á samtalið og biðja þig að svara aftur eftir það
NafnAllir sem skrá sigTil að heilsa þér með nafni og svo stjórnendur hringsins þíns viti hver þú ert. Nafnið birtist aldrei opinberlega og fer aldrei í opna gagnasafnið
SímanúmerValkvætt, ef við biðjum um þaðTil að senda þér SMS um staðsetningu, tíma og áminningar, og svo stjórnendur hringsins þíns geti náð í þig
FæðingarárAllirTil að sjá hvernig ólíkar kynslóðir hugsa
PóstnúmerAllirTil að sjá hvernig ólíkir landshlutar hugsa og til að finna borð nálægt þér
HringurAllir sem tilheyra hringHringur er hópurinn sem þú tekur þátt með: skóli, vinnustaður, félag eða borð sem þú stofnar sjálf(ur). Til að skipuleggja daginn og sjá hvernig ólíkir hópar hugsa
SkóliLóðsar (leiðbeinendur)Til að skipuleggja þjálfun og raða Lóðsum á staði
Svör við spurningum SamtalsinsAllir sem svaraÞetta er kjarninn í Samtalinu. Sömu spurningar fyrir og eftir sýna hvernig samtalið hreyfir við fólki
Umræðuefni sem þú vilt ræðaAllir sem svaraTil að velja umræðuefni dagsins
Uppáhalds staðurinn þinn á Íslandi (heiti, hnit og skýring)Þau sem viljaTil að sýna samandregið á korti í Samtalinu hvaða staðir eru fólki kærir. Birtist aldrei með nafni eða netfangi
Frjáls texti, hugmyndir og skilaboð til framtíðarÞau sem viljaTil að birta á vefnum og geyma fyrir komandi kynslóðir
Tæknilegar upplýsingar (tímastimpill, dulkóðað IP-númer, gerð vafra)Safnast sjálfkrafaTil að vefurinn virki og sé öruggur

3. Hvað söfnum við ekki?

Ef þú skrifar upplýsingar um þig eða annað fólk í frjálsa textareiti, sjá kafla 5.

4. Til hvers notum við upplýsingarnar?

Við notum þær í þrennum tilgangi og ekki öðrum:

a) Til að halda Samtalið. Skrá þig, raða þér á borð, þjálfa Lóðsa og senda þér spurningarnar aftur eftir samtalið.

b) Til að hafa samband við þig. Senda þér tölvupóst og SMS um staðsetningu, tíma, áminningar og niðurstöður. Stjórnendur hringsins þíns, til dæmis kennari eða Lóðs sem leiðir borðið þitt, geta einnig haft samband við þig út frá tengiliðaupplýsingum þínum, en aðeins um Samtalið.

c) Til að búa til opið gagnasafn þjóðarinnar. Svör allra, merkt aðeins póstnúmeri, fæðingarári og hring, verða gerð aðgengileg öllum sem vilja skoða, rannsaka eða nýta þau. Þetta er tímakapsúla um hvernig fólk á Íslandi hugsaði um landið sitt árið 2026.

d) Til að bæta vefinn. Að skilja hvar fólk stoppar, hvað virkar og hvað ekki. Þetta gerum við aðeins með þínu leyfi, sjá kafla 7.

Lagagrundvöllur vinnslunnar er samþykki þitt samkvæmt 1. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og a-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Tæknilegar upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að vefurinn virki og sé öruggur vinnum við á grundvelli lögmætra hagsmuna.

5. Opna gagnasafnið: hvað fer þangað og hvað ekki

Þetta er stærsta ákvörðunin sem þú tekur með því að taka þátt, svo hér er hún útskýrð nákvæmlega.

Fer í opna gagnasafnið:

Fer aldrei í opna gagnasafnið:

Hvernig við pössum að enginn þekkist:

Hvað aðrir mega gera við gögnin:

Gagnasafnið verður gefið út með opnu leyfi sem heimilar öllum að skoða, greina, nýta og deila gögnunum, þar á meðal fjölmiðlum, rannsakendum, skólum og almenningi, hér á landi og erlendis. Þegar gögnin hafa verið gefin út getum við ekki kallað þau til baka frá þeim sem hafa þegar sótt þau.

Hvernig við greinum svörin:

Við notum hugbúnað sem finnur sameiginleg þemu í þúsundum svara og birtir niðurstöður myndrænt á vefnum meðan á deginum stendur. Engar ákvarðanir um þig sem einstakling eru teknar á grundvelli þessarar greiningar.

6. Hverju samþykkir þú?

Þegar þú skráir þig biðjum við um þrjú aðskilin samþykki. Fyrstu tvö eru nauðsynleg til að taka þátt á vefnum, þriðja er valkvætt.

Samþykki 1: Opið gagnasafn (nauðsynlegt til að svara)

Ég samþykki að svörin mín við spurningum Samtalsins, ásamt póstnúmeri, fæðingarári og hringnum sem ég tek þátt með, verði hluti af opnu gagnasafni sem allir mega nota. Ég skil að netfang og símanúmer fylgja aldrei með.

Án þessa samþykkis er ekki hægt að svara spurningunum, því svörin eru tilgangur Samtalsins. Þú getur samt komið á staðinn og tekið þátt í samtalinu við borðið.

Samþykki 2: Samband (nauðsynlegt til að skrá sig)

Ég samþykki að Samtal og stjórnendur hringsins míns hafi samband við mig með tölvupósti og SMS um Samtalið: staðsetningu, tíma, áminningar og niðurstöður.

Við höfum ekki samband um annað en Samtalið og sendum aldrei auglýsingar. Stjórnendur hringsins þíns sjá tengiliðaupplýsingar þínar aðeins meðan þú ert í hringnum og mega aðeins nota þær til að skipuleggja samtalið.

Samþykki 3: Notendagreining (valkvætt)

Ég samþykki að Samtal safni upplýsingum um hvernig ég nota vefinn, án vafrakaka sem fylgja mér á aðra vefi, til að bæta hann.

Þú getur breytt þessu vali hvenær sem er í stillingunum þínum eða með því að skrifa okkur.

Þú getur afturkallað hvert samþykkið sem er, sjá kafla 10. Ef þú afturkallar samþykki 2 getum við ekki lengur minnt þig á samtalið eða beðið þig að svara aftur, en þú getur samt tekið þátt.

7. Notendagreining: hvernig hún virkar

Ef þú samþykkir notendagreiningu söfnum við upplýsingum um hvaða síður eru skoðaðar, hvar fólk hættir í skráningarferlinu og hvaða tæki og vafrar eru notaðir.

Við gerum þetta þannig:

Ef þú samþykkir ekki setjum við aðeins þær vafrakökur sem eru nauðsynlegar til að þú getir skráð þig inn.

8. Hverjir fá aðgang að upplýsingunum?

Innan Samtals: Aðeins þeir sem þurfa þess vegna starfa sinna, bundnir þagnarskyldu.

Stjórnendur hringsins þíns: Sá sem stjórnar hring, til dæmis kennari sem skipuleggur skólann sinn eða Lóðs sem leiðir borð, sér netföng og símanúmer þeirra sem eru í hringnum, ásamt fæðingarári og póstnúmeri. Stjórnendur sjá ekki svörin þín. Þeir samþykkja sérstakar reglur um að nota upplýsingarnar aðeins til að skipuleggja Samtalið og eyða þeim eftir daginn. Ef þú ferð úr hring hverfa upplýsingar þínar úr yfirliti stjórnandans.

Vinnsluaðilar sem hýsa og reka vefinn fyrir okkur, samkvæmt vinnslusamningi:

Þessir aðilar mega ekki nota upplýsingarnar í eigin þágu.

Opna gagnasafnið fer til allra, eins og lýst er í kafla 5. Það inniheldur aldrei netföng eða símanúmer.

Við afhendum aldrei netföng eða símanúmer til þriðja aðila, nema lög krefjist.

9. Hvar og hve lengi geymum við upplýsingarnar?

Hvar: Öll gögn eru geymd í gagnaverum innan Evrópska efnahagssvæðisins (Frankfurt). Hýsingaraðilar okkar eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og lúta þar með bandarískum lögum. Við höfum valið þá vegna þess að gögnin eru geymd innan Evrópu og þeir hafa skuldbundið sig samkvæmt evrópskum reglum um gagnaflutninga. Við endurskoðum þetta reglulega.

Hve lengi:

UpplýsingarGeymslutími
Netfang og símanúmerEytt [6 mánuðum] eftir þjóðardaginn 10. október 2026, eða fyrr ef þú biður um það. Þeim sem vilja fá fréttir af niðurstöðum bjóðum við að staðfesta það sérstaklega áður en tengiliðaupplýsingum er eytt
Aðgangur stjórnenda hringja að tengiliðaupplýsingumLokað [30 dögum] eftir þjóðardaginn
Skóli LóðsaEytt með netfangi
NafnEytt með netfangi
Tæknilegar upplýsingarEytt innan [90 daga]
NotendagreiningSamandregin gögn geymd, einstakar heimsóknir eytt innan [12 mánaða]
Svör, póstnúmer og fæðingarárGeymd varanlega í opna gagnasafninu, ótengd við þig, sem tímakapsúla fyrir komandi kynslóðir

Þegar netfangið þitt hefur verið eytt getum við ekki lengur fundið hvaða svör voru þín. Það er meðvituð ákvörðun til að tryggja að gagnasafnið verði aldrei rekjanlegt.

10. Réttindi þín

Á meðan við geymum netfangið þitt getur þú:

Skrifaðu á [personuvernd@talasaman.is]. Við svörum innan mánaðar.

Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig við förum með upplýsingar um þig getur þú kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, personuvernd.is.

11. Börn og ungt fólk

Samtalið er fyrir alla aldurshópa og margir þátttakendur eru í framhaldsskóla.

12. Öryggi

13. Breytingar á stefnunni

Þessi stefna getur breyst, sérstaklega á meðan verkefnið er í mótun. Við birtum alltaf nýjustu útgáfu hér með dagsetningu. Ef breytingin skiptir máli fyrir það sem þú hefur samþykkt sendum við þér tölvupóst og biðjum um samþykki að nýju.