Um okkur

Að Samtali stendur Samtal, félag til almannaheilla, sem er stofnað var í kringum verkefnið. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er hvatamaður og verndari verkefnisins en meðal annarra aðila sem styðja við það með beinum og óbeinum hætti eru fjármálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Bandalag íslenskra skáta, Félag framhaldsskólanema, Félag skólameistara, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans, Ungmennafélag Íslands, Heimili og Skóli og Embætti forseta Íslands.

Stefnuyfirlýsing

Samtal er öruggur vettvangur fyrir samræður þjóðar.

„Við skulum við byggja upp samfélag sem stendur vörð um mannlega reisn, eflir traust og tryggir öllum tækifæri til að vaxa og dafna. Framtíðin er ekki eitthvað sem einfaldlega gerist, hún er veruleiki sem við mótum saman. Ef við þráum frið verðum við að tala fyrir friði. Ef við þráum réttlæti verðum við að standa vörð um það. Ef við viljum búa í samfélagi sem byggir á virðingu og kærleika verðum við sjálf að rækta þau gildi í orði og verki – heima fyrir, á vinnustað og í opinberri umræðu... Samtal getur orðið ein af leiðunum sem við notum til að skapa slíkt samfélag; heimahöfn þar sem öllum finnst þau tilheyra og eiga öruggt skjól.“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
  1. Samtalið er allra

    Samtal er sameign fólksins sem tekur þátt. Gögnin sem verða til eru sameign þátttakenda, opin og aðgengileg öllum.

  2. Öryggi og friður

    Samtali er ætlað að efla frið og farsæld. Í Samtali ríkir virðing fyrir ólíkum sjónarmiðum. Hótunum, ofbeldi og hatri er hafnað.

  3. Allar raddir heyrast

    Samtal miðar ekki að einni niðurstöðu. Allir fá orðið, líka þau sem sjaldnar heyrist í.

  4. Enginn gróði

    Samtal er ekki til sölu, verður ekki veðsett og skilar aldrei fjárhagslegum arði. Gögn þátttakenda verða aldrei söluvara.

  5. Tæknin þjónar fólki

    Við notum tækni til að halda betur utan um samtöl okkar, tengja fleiri saman og miðla Samtalinu áfram. Henni verður ekki beitt til að stýra Samtalinu eða hafi áhrif á hugmyndir okkar.

  6. Traust er grunnurinn

    Öryggi, gagnsæi og ábyrgð eru grundvöllur Samtalsins.

  7. Það sem við hlúum að vex

    Við horfum til langs tíma, við ræktum Samtalið fyrir næstu kynslóðir.