Persónuverndarstefna Samtals
talasaman.is
Útgáfa 1.3, drög. Síðast uppfært: 14. september 2026.
Í stuttu máli
- Við söfnum netfangi, fæðingarári og póstnúmeri. Þeir sem leiða samtöl/lóðsar gefa líka upp nafn síns skóla. Síðar gætum við beðið um símanúmer.
- Við söfnum rafrænum svörum þínum við spurningum hér á vefsíðunni, fyrir og eftir Samtalið 10. október.
- Ef þú vilt getur þú svarað þessum spurningum með stuttri hljóðupptöku í stað þess að skrifa. Þessi hljóðupptaka verður ekki gerð opinber nema með þínu leyfi.
- Rafrænu svörin þín og það sem þú segir í Samtalinu 10. október verða hluti af opnu gagnasafni sem allir mega nota. Þar eru svörin aðeins tengd við póstnúmer, fæðingarár og staðinn þar sem þú tókst þátt í Samtali (til dæmis skóli eða vinnustaður). Þau eru aldrei opinberlega tengd við nafn, netfang, eða símanúmer.
- Við biðjum sérstaklega um leyfi þitt til að skoða hvernig vefurinn talasaman.is er notaður svo við getum bætt hann.
- Við seljum ekki upplýsingar um þig, eða afhendum með öðrum hætti og notum þær ekki í auglýsingar.
- Þú getur hvenær sem er hætt við þátttöku og fengið netfanginu þínu og símanúmeri eytt úr gögnunum.
Í textanum hér fyrir neðan notum við þrjú hugtök sem mikilvægt er að þekkja og skilja: Lóðs, hringur og borð. Lóðs er sá sem leiðir Samtal, hringur er sá staður þar sem þitt samtal fer fram og borð er sá hópur sem þú átt í samtali við.
Það sem hér fer á eftir útskýrir þetta nánar. Ef eitthvað er óskýrt máttu skrifa okkur á samtal@talasaman.is.
1. Hver ber ábyrgð á upplýsingunum?
Ábyrgðaraðili er Samtal, félag til almannaheilla.
Netfang fyrir spurningar um persónuvernd: samtal@talasaman.is
Ef félagið tilnefnir persónuverndarfulltrúa verður nafn hans og netfang birt hér.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
| Upplýsingar | Hver gefur þær | Til hvers |
|---|---|---|
| Netfang | Allir sem skrá sig | Til að senda þér innskráningarhlekk, minna þig á Samtalið og biðja þig að svara spurningum eftir þátttöku í því. Einnig er það notað til að senda þér upplýsingar staðsetningu og tíma þíns samtals og áminningar. Einnig nýtt stjórnendur hringsins þíns geti náð í þig |
| Fullt nafn/Skírnarnafn | Allir sem skrá sig | Til að við getum ávarpað þig með nafni og svo stjórnendur hringsins viti hver þú ert. Nafnið birtist aldrei opinberlega og fer aldrei í opna gagnasafnið |
| Símanúmer | Þau sem vilja (ekki er óskað eftir því við skráningu) | Til að senda þér SMS um staðsetningu, tíma og áminningar, og svo stjórnendur hringsins þíns geti náð í þig |
| Fæðingarár | Allir | Til að hægt sé að bera saman viðhorf ólíkra aldurshópa |
| Póstnúmer | Allir | Til að hægt sé að bera saman viðhorf fólks í ólíkum landshlutum og finna hring eða borð sem hentar þér |
| Hringur | Allir sem tilheyra hring | Hringur er hópurinn sem þú tekur þátt í samtali með: skóli, vinnustaður, félag eða borð sem þú stofnar sjálf(ur). Til að skipuleggja Samtalið 10. október og til að sjá ólík viðhorf eftir hópum |
| Skóli | Lóðsar (leiðbeinendur) | Til að skipuleggja þjálfun og raða lóðsum á staði (í hring og á borð) |
| Svör við rafrænum spurningum Samtalsins hér á vefnum. | Allir sem svara | Þessi svör eru kjarninn í Samtalinu. Sömu spurningar eru lagðar fyrir þig fyrir og eftir samtalið til að kanna hvort og hvernig samtalið hreyfir við fólki |
| Umræðuefni sem þú vilt ræða | Allir sem svara | Til að velja umræðuefni dagsins á þínu borði |
| Uppáhaldsstaðurinn þinn á Íslandi (heiti, hnit og skýring) | Þau sem vilja | Til að sýna samandregið á korti í Samtalinu hvaða staðir eru fólki kærir. Staðurinn, skýringin og nafnið þitt birtast aðeins öðrum þátttakendum í Samtalinu. |
| Frjáls texti, hugmyndir og skilaboð til framtíðar | Þau sem vilja | Til að birta á hér á vefnum og geyma fyrir komandi kynslóðir |
| Hljóðupptaka af rödd þinni, allt að 30 sekúndur | Þau sem kjósa að tala í stað þess að skrifa | Til að hægt sé að umrita svarið í texta og til að raddir geti heyrst í umfjöllun um Samtalið og við kynningu á niðurstöðum. Sjá kafla 8 |
| Tæknilegar upplýsingar (tímastimpill, dulkóðað IP-númer, gerð vafra) | Safnast sjálfkrafa | Til að vefurinn virki og sé öruggur |
3. Hverju söfnum við ekki?
- Ekki kennitölu. Enginn þarf að sanna hver hann er til að taka þátt.
- Ekki staðsetningu úr tækinu þínu. Við lesum aldrei staðsetningu símans eða tölvunnar sem þú notar þegar þú skrifar rafræn svör. Póstnúmerið sem þú skrifar sjálf(ur), og uppáhaldsstaðurinn sem þú velur sjálf(ur) á korti ef þú vilt, er það eina sem við notum til að tengja svör og aðrar upplýsingar við stað.
Ef þú skrifar upplýsingar um þig eða annað fólk í frjálsa textareiti, sjá kafla 5.
4. Til hvers notum við upplýsingarnar sem við söfnum?
a) Til að halda Samtalið; skrá þig, raða þér á borð, velja lóðsa og biðja þig að svara spurningum eftir samtalið.
b) Til að hafa samband við þig: Senda þér tölvupóst og/eða SMS um staðsetningu og tíma samtalsins, áminningar og niðurstöður. Stjórnendur hringsins þíns, til dæmis kennari eða lóðs sem leiðir borðið þitt, geta einnig haft samband við þig með tölvupósti eða sms, en aðeins um Samtalið.
c) Til að búa til opið gagnasafn um samtal þjóðarinnar 2026. Svör allra, merkt aðeins póstnúmeri, fæðingarári og hring, verða gerð aðgengileg öllum sem vilja skoða, rannsaka eða nýta þau. Þetta er sneiðmynd af viðhorfi fólks á Íslandi um landið sitt og framtíðina árið 2026.
d) Til að bæta vefinn. Að skilja hvar fólk stoppar, hvað virkar og hvað ekki. Þetta gerum við aðeins með þínu leyfi, sjá kafla 7.
e) Til að segja frá Samtalinu. Að kynna niðurstöður, spila hljóðupptökur opinberlega og deila þeim með völdum samstarfsaðilum, til dæmis fjölmiðlum, til umfjöllunar. Þetta á aðeins við um upptökur sem þú velur sjálf(ur) að senda inn og samþykkir að sé gerðar opinberar, sjá kafla 8.
Lagagrundvöllur vinnslu þeirra upplýsinga sem hér um ræðir er samþykki þitt samkvæmt 1. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og a-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þú gefur það með því að haka í viðeigandi reiti þegar þú skráir þig í Samtal og svarar rafrænum spurningum. Tæknilegar upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að vefurinn virki og sé öruggur vinnum við á grundvelli lögmætra hagsmuna.
5. Opna gagnasafnið: hvað fer þangað og hvað ekki
Það að gefa leyfi til að efni frá þér fari í opna gagnasafnið er stærsta ákvörðunin sem þú tekur með því að taka þátt, svo hér er hún útskýrð nákvæmlega.
Þetta fer í opna gagnasafnið:
- Svör þín við rafrænum spurningum á vefnum talasaman.is, bæði fyrir og eftir sjálft Samtalið 10. október
- Umræðuefnin sem þú velur.
- Frjáls texti, hugmyndir og skilaboð til framtíðar.
- Póstnúmerið þitt og fæðingarárið þitt, tengd við svörin, umræðuefnin og annan texta.
- Nafn hringsins sem þú tókst þátt með, sem getur falið í sér nafn skóla, vinnustaðar eða félags.
- Hvort þú tókst þátt sem lóðs eða sem almennur þátttakandi.
Þetta fer aldrei í opna gagnasafnið:
- Netfangið þitt.
- Símanúmerið þitt.
- Tæknilegar upplýsingar um tækið þitt (sem safnað er til að bæta vefinn).
- Hljóðskrá ef þú svarar með hljóðupptöku. Aðeins umritaður texti fer í opna gagnasafnið, yfirlesinn eins og annar frjáls texti. Sjá kafla 8.
- Ekkert annað sem tengir svörin þín við þig sem einstakling.
Hvernig við pössum að enginn þekkist:
- Ef fáir svara sem eru með sama fæðingarár, í sama póstnúmeri eða hring að hægt væri að þekkja einhvern, sameinum við hópa (til dæmis í landshluta, fimm ára aldursbil eða "framhaldsskólar á Norðurlandi") áður en gögnin eru birt. Þetta skiptir sérstaklega máli fyrir fámenna hringi.
- Við biðjum þig um að skrifa ekki nöfn eða persónuupplýsingar í frjálsa textareitinn. Í reitnum er minnt sérstaklega á þetta.
- Við lesum yfir frjálsan texta og fjarlægjum nöfn, símanúmer og annað sem gæti bent á þig eða annað fólk áður en viðkomandi texti er birtur.
Hvað aðrir mega gera við gögnin:
Gagnasafnið verður gert opinbert með opnu leyfi sem felur í sér að öllum er heimilt að skoða, greina, nýta og deila gögnunum, þar á meðal fjölmiðlum, rannsakendum, skólum og almenningi, hér á landi og erlendis. Þegar gögnin hafa verið gerð opinber getum við ekki kallað þau til baka frá þeim sem hafa þegar sótt þau. Við seljum ekki gögnin en við getum ekki ábyrgst notkun annarra á gögnunum.
Hvernig við greinum svörin:
Við notum hugbúnað sem finnur sameiginleg þemu í þúsundum svara og frjálsra texta og birtir niðurstöður myndrænt á vefnum talasaman.is meðan samræðan 10. október á sér stað og í kjölfar hennar. Engar ákvarðanir um þig sem einstakling eru teknar á grundvelli þessarar greiningar.
6. Hverju samþykkir þú?
Þegar þú skráir þig í upphafi rafrænt til þátttöku biðjum við um þrjú aðskilin samþykki. Fyrstu tvö eru nauðsynleg til að taka þátt í Samtali, þriðja er valkvætt. Við biðjum síðar um eitt samþykki til viðbótar ef þú velur að svara með hljóðupptöku.
Samþykki 1: Opið gagnasafn (nauðsynlegt til að svara)
Ég samþykki að svörin mín við spurningum Samtalsins, ásamt póstnúmeri, fæðingarári og hringnum sem ég tilheyri, verði hluti af opnu gagnasafni sem allir mega nota. Ég skil að netfang og símanúmer fylgja aldrei með þessum efni í opnu gagnasafni.
Án þessa samþykkis geturðu ekki svarað rafrænu spurningunum, því svörin eru kjarni Samtalsins. Þú getur samt tekið þátt í Samtalinu við þitt borð 10. október með því að mæta í þinn hring.
Samþykki 2: Samband (nauðsynlegt til að skrá sig)
Ég samþykki að Samtal og stjórnendur hringsins míns hafi samband við mig með tölvupósti og/eða SMS um Samtalið: til að koma á framfæri staðsetningu og tíma samtalsins, senda út áminningar og niðurstöður.
Við höfum ekki samband við þig um önnur efni en Samtalið og sendum þér aldrei auglýsingar. Stjórnendur hringsins þíns sjá tengiliðaupplýsingar þínar aðeins meðan þú ert í hringnum og mega aðeins nota þær til að skipuleggja samtalið í þínum hring.
Samþykki 3: Notendagreining (valkvætt)
Ég samþykki að Samtal safni upplýsingum um hvernig ég nota vefinn til að bæta hann, án vafrakaka sem fylgja mér á aðra vefi,.
Þú getur breytt þessu vali hvenær sem er í stillingunum þínum eða með því að skrifa okkur.
Samþykki 4: Hljóðupptaka og birting (valkvætt)
Ef ég vel að svara með hljóðupptöku í stað þess að skrifa samþykki ég að Samtal taki upp röddina mína, geymi upptökuna, spili hana opinberlega og deili henni með völdum samstarfsaðilum, svo sem fjölmiðlum og félagasamtökum, til útsendingar eða umfjöllunar.
Vilji ég ekki að röddin mín heyrist opinberlega get ég valið að skrifa svarið í staðinn.
Við biðjum um þetta í hvert sinn sem þú tekur upp svar, ekki við skráningu. Ef þú velur að skrifa svarið í staðinn hefur það engin áhrif á þátttöku þína og engu er sleppt. Hljóðupptaka er til þess gerð að heyrast, og þess vegna er leyfið eitt: upptaka og birting fylgjast að. Sjá kafla 8 um hvað það þýðir í reynd.
Þú getur afturkallað hvaða samþykki sem er af þessum fjórum, sjá kafla 11. Ef þú afturkallar Samþykki 2 getum við ekki lengur sent þér áminningar eða beðið þig að svara að loknu Samtalinu 10. október, en þú getur samt tekið þátt í því.
7. Notendagreining: hvernig hún virkar
Ef þú samþykkir notendagreiningu (Samþykki 3) söfnum við upplýsingum um hvaða síður viðkomandi skoðar, hvar fólk hættir í skráningarferlinu og hvaða tæki og vafrar eru notaðir.
Við gerum þetta þannig:
- Við notum [heiti greiningartóls] sem er hýst innan Evrópu.
- Engar vafrakökur eru notaðar sem fylgja þér yfir á aðra vefi.
- IP-númer eru dulkóðuð áður en þau eru geymd og aldrei tengd við svörin þín.
- Gögnin eru aðeins skoðuð samandregin, ekki um einstaka notendur.
- Við notum ekki Google Analytics, Meta Pixel eða sambærileg auglýsingatól.
Ef þú hakar ekki við Samþykki 3 notum við aðeins þær vafrakökur sem eru nauðsynlegar til að þú getir skráð þig inn.
8. Hljóðupptökur: hvernig þær virka
Þú getur valið að tala í stað þess að skrifa þegar þú skilar inn rafrænum svörum hér á vefnum. Það er alltaf valkvætt og aldrei skilyrði fyrir þátttöku í Samtalinu sjálfu 10. október.
Hljóðupptaka er til þess gerð að heyrast:
Við söfnum ekki röddum til að geyma þær ósnertar. Tilgangurinn er að þjóðin heyri þær: að raddir fólks af öllu landinu hljómi í umfjöllun um Samtalið og þegar niðurstöður eru kynntar. Þess vegna er leyfið eitt en ekki tvö. Veljir þú að taka upp þarftu að gera ráð fyrir að upptakan geti heyrst.
Ef þú vilt þú ekki að röddin þín heyrist, skrifaðu svarið í staðinn. Það er fullgildur valkostur, svörin vega jafnþungt og hljóðupptökur og engu er sleppt úr skrifuðu svari. Þetta er ástæðan fyrir því að hljóðupptaka er aldrei skilyrði.
Röddin þín þekkist:
Skrifaðan texta getum við lesið yfir og gert ópersónugreinanlegan (með því að taka út sérnöfn og annað persónugreinanlegt efni). Hljóðupptöku getum við það ekki gert ópersónugreinanlegan: hver sem þekkir röddina þína gæti þekkt þig af upptökunni, óháð því hvað í henni er sagt. Það er rétt þú hugleiðir þetta áður en þú velur að senda inn hljóðupptöku.
Hvað verður um upptökuna:
- Upptakan er í mesta lagi 30 sekúndur. Þú getur hlustað á hana, tekið hana upp aftur eða eytt henni áður en þú sendir hana.
- Við umritum upptökuna sem texta með talgreiningarhugbúnaði. Textinn er meðhöndlaður eins og annar frjáls texti: við lesum hann yfir og fjarlægjum nöfn og annað sem gæti bent á þig eða annað fólk áður en hann birtist.
- Umritaði textinn fer í opna gagnasafnið eins og skrifuð svör, sjá kafla 5.
- Með samþykki 4 gefur þú okkur leyfi til að spila upptökuna opinberlega, til dæmis á vefnum, á viðburðum og í kynningum á niðurstöðum.
- Þú getur okkur líka leyfi til að deila henni með völdum samstarfsaðilum, svo sem fjölmiðlum og félagasamtökum, en bara í þeim eina tilgangi að segja frá Samtalinu og niðurstöðum þess. Þessir aðilar mega ekki nota hana í auglýsingar eða í eigin þágu að neinu öðru leyti.
- Við veljum ekki upptökur eftir því hver þú ert, heldur eftir því hvað er sagt í upptökunni.
- Nafnið þitt fylgir aldrei upptökunni frá okkur.
Hljóðskráin fer samt aldrei í opna gagnasafnið:
Opinber birting upptöku og varðveisla í opna gagnasafninu er tvennt ólíkt. Að við spilum upptöku í útvarpsþætti merkir ekki að hún sé gerð opinber með opnu leyfi sem heimilar hverjum sem er að sækja hana og nota að vild um ókomna tíð. Umritaði textinn fer í opna gagnasafnið, hljóðskráin ekki.
Ef þú skiptir um skoðun:
Þú getur hvenær sem er afturkallað Samþykki 4 og beðið um að upptökunni verði eytt. Efni sem þegar hefur verið sent út eða birt getum við ekki kallað til baka, ekki frekar en gögn sem þegar hafa verið sótt af þriðja aðila úr opna gagnasafninu.
9. Hverjir fá aðgang að upplýsingunum?
Innan Samtals: Aðeins þeir sem þurfa þess vegna starfa sinna, og eru þeir aðilar bundnir þagnarskyldu.
Stjórnendur hringsins þíns: Sá sem stjórnar hring, til dæmis kennari sem skipuleggur hring í skólanum sínum eða lóðs sem leiðir borð, sér netföng og símanúmer þeirra sem eru í hringnum, ásamt fæðingarári og póstnúmeri. Stjórnendur sjá ekki svörin þín. Þeir samþykkja sérstakar reglur um að nota upplýsingarnar aðeins til að skipuleggja Samtalið og eyða þeim eftir 10. október. Ef þú yfirgefur hring hverfa upplýsingar þínar úr yfirliti stjórnandans.
Vinnsluaðilar sem hýsa og reka vefinn fyrir okkur, samkvæmt vinnslusamningi:
- [Vercel] hýsir vefinn, gagnaver í Frankfurt, Þýskalandi.
- [Neon] hýsir gagnagrunninn, gagnaver í Frankfurt, Þýskalandi.
- Resend sendir innskráningarhlekki og tölvupósta (netfang, efni og texti póstsins).
- Photon (Komoot, Þýskalandi) leitar að stöðum þegar þú velur uppáhaldsstað á kortinu. Fyrirtækið fær aðeins leitartextann eða hnitið sem þú smelltir á, aldrei upplýsingar um hver þú ert.
- OpenTopoMap afhendir kortaflísar. Fyrirtækið fær IP-númer tækisins þíns og upplýsingar um hvaða hluta kortsins þú skoðar, eins og allir kortaþjónar.
- [SMS-þjónusta] sendir SMS, ef þú gefur upp símanúmer.
- [Greiningartól] ef þú samþykkir notendagreiningu.
- [Talgreiningarþjónusta] umritar hljóðupptökur í texta, en aðeins ef þú velur að svara með hljóðupptöku. Fyrirtækið fær upptökuna sjálfa en ekki nafn þitt eða netfang.
Þessir aðilar mega ekki nota upplýsingarnar í eigin þágu.
Opna gagnasafnið er öllum aðgengilegt, eins og lýst er í kafla 5. Það inniheldur aldrei netföng, símanúmer eða hljóðskrár þátttakenda.
Samstarfsaðilar um umfjöllun, til dæmis fjölmiðlar og félagasamtök, fá valdar hljóðupptökur en aðeins frá þeim sem hafa sent inn upptöku og hakað við Samþykki 4, og aðeins til að segja frá Samtalinu. Sjá kafla 8.
Við afhendum aldrei netföng eða símanúmer til þriðja aðila, nema lög krefjist.
10. Hvar og hve lengi geymum við upplýsingarnar?
Hvar: Öll gögn eru geymd í gagnaverum innan Evrópska efnahagssvæðisins (Frankfurt). Hýsingaraðilar okkar eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og lúta þar með bandarískum lögum. Við höfum valið þá vegna þess að gögnin eru geymd innan Evrópu og þeir hafa skuldbundið sig samkvæmt evrópskum reglum um gagnaflutninga. Við endurskoðum þetta reglulega.
Hve lengi eru gögn geymd:
| Upplýsingar | Geymslutími |
|---|---|
| Netfang og símanúmer | Eytt [6 mánuðum] eftir Samtalið 10. október 2026, eða fyrr ef þú biður um það. Þeim sem vilja fá fréttir af niðurstöðum fá boð frá okkar um að staðfesta það sérstaklega áður en tengiliðaupplýsingum er eytt |
| Aðgangur stjórnenda hringja að tengiliðaupplýsingum | Lokað [30 dögum] eftir Samtalið 10. október. |
| Skóli Lóðsa | Eytt með netfangi |
| Nafn | Eytt með netfangi |
| Tæknilegar upplýsingar | Eytt innan [90 daga] |
| Notendagreining | Samandregin gögn geymd, einstakar heimsóknir eytt innan [12 mánaða] |
| Hljóðupptökur | Geymdar [þar til þú afturkallar samþykkið] svo hægt sé að segja frá Samtalinu, og eytt í síðasta lagi [. . .]. Umritaði textinn verður eftir í opna gagnasafninu, ótengdur við þig. Efni sem þegar hefur verið sent út verður áfram til hjá þeim sem birtir það |
| Svör, póstnúmer og fæðingarár | Geymd varanlega í opna gagnasafninu, ótengd við þig, sem upplýsingabanki fyrir komandi kynslóðir |
Þegar netfanginu þínu hefur verið eytt getum við ekki lengur fundið hvaða svör voru þín. Það er meðvituð ákvörðun til að tryggja að gagnasafnið verði aldrei rekjanlegt.
11. Réttindi þín
Á meðan við geymum netfangið þitt getur þú:
- Skoðað allar upplýsingar sem við höfum um þig.
- Leiðrétt póstnúmer, fæðingarár, símanúmer eða skóla.
- Fengið eytt netfangi, símanúmeri og öllu sem tengist þeim upplýsingum. Svörin þín, með póstnúmeri, fæðingarári og hring, verða þá eftir í opna gagnasafninu ótengd við þig, nema þú biðjir sérstaklega um að þeim verði einnig eytt áður en gagnasafnið er gert opinbert.
- Farið úr hring hvenær sem er, og þá sér stjórnandi hringsins þig ekki lengur.
- Afturkallað samþykki 2 og samþykki 3 fyrir sambandi eða notendagreiningu hvenær sem er.
- Fengið hljóðupptökum eytt og afturkallað samþykki 4 hvenær sem er. Efni sem þegar hefur verið sent út getum við ekki kallað til baka.
- Afturkallað samþykki 1 fyrir opna gagnasafnið fram að útgáfu þess. Eftir útgáfu getum við fjarlægt svörin úr okkar eigin útgáfu en ekki hjá þeim sem hafa þegar sótt gögnin.
- Fengið afrit af upplýsingum þínum á stafrænu formi.
Skrifaðu á samtal@talasaman.is til að óska eftir því sem fram kemur hér í kafla 11. Við svörum innan mánaðar.
Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig við förum með upplýsingar um þig getur þú kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, personuvernd.is.
12. Börn og ungt fólk
Samtalið er fyrir alla aldurshópa og ætla má að margir þátttakendur séu nemendur í framhaldsskóla.
- Þau sem eru 13 ára og eldri geta skráð sig sjálf, í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2018.
- Þau sem eru yngri en 13 ára geta tekið þátt í samtalinu við borð en þurfa leyfi forsjáraðila til að skrá sig á vefinn talasaman.is. Skólar og leikskólar sem halda undirbúningsviðburði fyrir yngri börn skila inn niðurstöðum hópsins, ekki niðurstöðum einstakra barna.
- Við biðjum um nafn við skráningu, líka hjá þeim sem eru 13 ára og eldri, svo hægt sé að heilsa þér með nafni. Nafn barna (þeirra sem eru yngri en 13 ára) birtast aldrei opinberlega, fara aldrei í opna gagnasafnið og er eytt með netfanginu.
- Hljóðupptökur: Af því að gert er ráð fyrir að upptaka megi heyrast opinberlega þurfa þau sem eru yngri en [18] ára að fá leyfi forsjáraðila áður en þau senda inn upptöku (samþykki 4). Þau geta alltaf skrifað svarið í staðinn án nokkurs leyfis.
13. Öryggi
- Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð.
- Innskráning fer fram með einnota hlekk sem sendur er í tölvupósti, engin lykilorð eru geymd.
- Netföng eru geymd aðskilin frá svörum og tengd með innri kóða sem aðeins kerfið sér.
- Aðgangur að gögnum er takmarkaður við þau sem þurfa að hafa aðgang og er skráður.
- Verði öryggisbrestur sem varðar þig tilkynnum við Persónuvernd um atvikið innan 72 klukkustunda og sendum þér tilkynningu ef hættan er mikil.
14. Breytingar á stefnunni
Þessi stefna getur breyst, sérstaklega á meðan verkefnið er í mótun. Við birtum alltaf nýjustu útgáfu hér með dagsetningu. Ef breytingin skiptir máli fyrir það sem þú hefur samþykkt sendum við þér tölvupóst og biðjum um samþykki að nýju.